Nýr dagur, nýtt verkefni!

konanÍ einu lagi með Sigurrós segir að það besta sem að Guð hefur skapað er nýr dagur. Ég held að það sé alveg rétt, nýr dagur felur í sér nýja möguleika, nýtt upphaf og ný verkefni.

Verkefni dagsins hjá mér er að vinna úr þeim heimildum sem að ég ætla að skoða fyrir næsta hluta í ritgerðinni minni, hlaupa smá og fara í kirkjustarf með 6 ára börnum í Neskirkju. Ég held að þetta sé bara ágætlega raunhæft og bý mig undir að takast á við þetta með nokkurri bjartsýni. Það er svo gott að taka sér smá frí eins og við gerðum um helgina, fara út úr bænum og koma því inn á sjóndeildarhringinn sem er mikilvægast og forgangsraða út frá því. Stundum þarf maður ákveðna fjarlægð við það sem að liggur þungt á manni til að sjá það í raunhæfu, framkvæmanlegu ljósi.

Þannig að nú held ég áfram veginn, þangað til annað kemur í ljós Whistling!

Til að gefa ykkur innsýn í þær heimildir sem að liggja fyrir að renna yfir á næstu tveimur vikum, þá er hér smá listi:

The Mary Magdalene Tradition. Witness and Counter Witness in Early Christian Communities. Holly E. Hearon.

The Gospel of John. Sagra Pagina Series. E. Moloney.

Mary Magdalene and Many Others. Women who followed Jesus. Carla Ricci.

The Women in the Life of the Bridegroom. A Feminist Historical-Literary Analysis of the Female Characters in the Fourth Gospel. Adeline Fehribach.

Mary Magdalene The First Apostle. The Struggle For Authority. Ann Graham Brock.

Mary of Magdala. Apostle and Leader. Mary R. Thompson.

Her Testimony is True. Women as Witnesses according to John. Robert Gordon Maccini.

The Gospel of Mary. Beyond Gnostic and a Biblical Mary Magdalene. Esther De Boer.

The Resurrection of Mary Magdalene. Legends, Apocrypha, and the Christian Testament. Jane Schaberg.

Mary Magdalene understood. Jane Schaberg.

Það er best að byrja og ég má engan tíma missa.

Nýr dagur, nýtt verkefni Wizard!

Ha´det!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Spennandi lesefni sem þú ert búin að viða að þér.

Njóttu dagsins luv.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.11.2007 kl. 13:18

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Dag í senn, eitt andartak í einu, lalalalalalalalala...   Kannski verður gefin út bókin  Sunna Dóra önderstúd  ...    ... Mín yrði örugglega misönderstúd.. hehe  ...  Gangi þér vel og göngum í gleði, gleði, gleði....

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.11.2007 kl. 13:29

3 Smámynd: Helga Dóra

Góð helgi að baki hjá þér greinilega. Ég ætla að kaupa jólaföt korter í jól. Ég er svo bjartsýn á að í kjólinn fyrir jólinn átakið verði það öflugt að ég verði farin niður um heila stærð fyrir jól   Vildi óska þess að ég nennti að hreyfa mig bara eitthvað

Helga Dóra, 12.11.2007 kl. 14:02

4 Smámynd: Dísa Dóra

greinilega góður bunki af heimildum sem þú þarft að fara þarna yfir - gangi þér vel

Dísa Dóra, 12.11.2007 kl. 14:24

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dugleg ertu.  Gangi þér virkilega vel í lestrinum.  Hugsa vel til þín. 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.11.2007 kl. 19:48

6 Smámynd: halkatla

mjög spennandi - gangi þér vel

halkatla, 12.11.2007 kl. 19:51

7 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Þrátt fyrir ótrúlega vinnu sem þú þarft að leggja á þig fyrir námið, og þrátt fyrir að þú sért með stórt heimili og miklu meira en nóg að gera, ertu búinn að skrifa frábærar athugasemndir við mína pistla. Dugnaðarforkur ertu!!! Ertu kannski líka að baka svona á milli? En bestu þakkir fyrir skrifin hjá mér og gangi þér vel í öllu sem þú þarft að gera. Knús

Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.11.2007 kl. 23:18

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Takk allar

hahahha....ég er ekki að baka og varla og elda og þrif eru eitthvað ofan á brauð....ég hefði ekki verið vænlegur kvenkostur í fornöld !

En þetta hefst dag í senn, eitt andartak í einu...eins og Jóhanna segir !

Sunna Dóra Möller, 14.11.2007 kl. 08:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 66325

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband