Tölvumál komin í lag!!

Það er bróður mínum að þakka að nú sit ég og blogga á mína tölvu og ég get sett kommur á rétta staði! Það er sannarlega gott að þessi mál eru komin í lag og ég get nú einhent mér í verkefni sem hafa setið á hakanum á meðan tölvan var að reyna að gera það upp við sig hvort hún ætti að hrynja eða ekki Devil! Hún ákvað að sleppa því að hrynja og nú er hún ný straujuð og fín með yfirnóg af vinnsluminni þannig að nú get ég troðfyllt hana af drasli alveg upp á nýtt Halo!

Annars er ég bara nokkuð góð þessa dagana, ég er byrjuð að lesa aftur eftir smá hlé og á borðinu hefur verið þessa síðustu daga mastersritgerð Sr. Bjarna Karlssonar sem heitir "Gæði náinna tengsla. Leit að viðunnandi lágmarksgildum fyrir kristna kynslífssiðfræði" og er alveg hreint stórkostleg lesning! Lestur þessarar ritgerðar fékk mig til að fara að lesa meira í kristinni kynlífssiðfræði og hef ég verið að glugga í greinar um misnotkun kirkjunnar manna á valdi almennt og síðan hef ég verið að skoða grein um hjónabandið þar sem að talað er um það sem valdatæki! Mikið finnst mér gaman að svona lestri og mikið líður mér vel þegar ég er að grúska í svona hlutum, ég finn að ég þarf á þessu að halda að lesa og vera að velta vöngum yfir þessum hlutum! Ég hef svo óendanlega gaman af þessum fræðum innan Guðfræðinnar, sérstaklega sem að lýtur að kynjafræði, siðfræði og svo uppáhaldið mitt Nýja testamentisfræðin en ég er að byrja að grúska í viskuhugmyndum ítengslum við kvenkynsveruna Sófíu og Jesú eins og hún birtist í Jóhannesarguðspjalli! Þannig að þið sjáið að það er stöðugt rokk og ról hjá mér og ég er að komast aftur af stað eftir ansi langt stopp! Hver veit nema ég bloggi svolítið um vald í tengslum við embættismenn kirkjunnar almennt og jafnvel í tengslum við hjónabandið líka ef að vel liggur á mér á næstunni. Hugmyndin og hugtakið "vald" er mér ansi hugleikið þessa dagana eftir lestur ofangreindra rita og má vera að ég setji fram hér smá pistil við gott tækifæri Cool! Það er gott að ögra sjálfum sér stundum og takast á við hluti sem að fá mann til að hugsa út fyrir rammann Wizard!

Ég bið að heilsa í bili mín kæru, sí jú sún!

sunna!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vald-embættismenn-prestar-OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þetta er hressandi blanda.....en þessi grein lýtur líka að þeim sem að taka sér leiðtogahlutverk almennt í söfnuðum og hér getur verið átt við hina frjálsu söfnuði einnig.....og þá er talað um hvernig hugmyndir um vald sem sá einstaklignur hefur sem velst til ábyrgðastöðu innan safnaðar, þá er átt við hugmyndir sem að hann hefur áður en að hann tekur við leiðtogahlutverkinu og geta komið fram í samskiptum hans/hennar við safnaðarmeðlimi síðar meir.....hér var mér hugsað til Guðmundar í byrginu og hvernig hans greinilega brengluðu hugmyndir um vald fóru með honum inn í leiðtogahlutverkið og þaðan út í misnotkun á meðlimum safnaðar sem hann bar ábyrgð á!! Þetta er svo áhugavert að ég hreinlega verð að gera færslu um þessa grein !

Sunna Dóra Möller, 27.5.2008 kl. 17:47

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Velkomin aftur á bloggið kæra Sunna, er sjálf á haus í vinnu núna

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.5.2008 kl. 21:21

4 Smámynd: halkatla

þín var svo sárt saknað! sérðu allt dramað sem hefur gerst á mínu bloggi meðan þú varst í burtu? úfff

en nú brosi ég af kæti

halkatla, 27.5.2008 kl. 22:25

5 identicon

Til hamingju med afmaelid Sunna, eg vona a dagurinn verdi godur hja ther og fjolskyldunni thinni.

kk. Erna

Erna (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 07:13

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Jóhanna: Gangi þér vel í vinnutörninni!

Anna: Gott að þú brosir....það hefur verið hressandi að fylgjast með blogginu þínu !

Erna: Takk

Sunna Dóra Möller, 28.5.2008 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 66323

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband