Viska

"Slepptu"
er stutt orð en áhrifaríkt. Ef ég vil,
þá get ég hætt tilraunum mínum til að stjórna einhverjum í dag.
Laun mín verða friður!
(úr bóknni Æðruleysi, hugleiðingar eftir Karen Casey) 
 
Sumt fólk er svo viturt.......skilur mann eftir með þá tilfinningu að maður sé undir meðalgreind þegar kemur að kommon sens í lífinu....W00t
 
Hér er fleira viturlegt úr sömu smiðju:
 
Stundum virðast vandamálin óyfirstíganleg og við vitum ekki hvert við eigum að snúa okkur. Ef til vill höfum við áhyggjur af vinnunni, heilsan er ekki í lagi eða að það að búa með ættingja í vanda verður erfiðara. En fæst okkar lenda í raunverulega erfiðum vandamálum en eiga þó stöðugt við vandamál að stríða. Að vera á lífi, að vera manneskja þýðir að margt veldur okkur erfiðleikum.
 
 
 
Skapgerðabrestir eru undirrót árekstra okkar við aðra, vekja sjálsmeðaumkvun okkar, kveikja óraunhæfar væntingar, magna hindranir og minnka gleðina. Það er einföld staðreynd, að óhamingja leiðir beint af skynjun okkar og viðbrögðum gagnvart fólki og atvikum umhverfis okkur.
 
Og áfram flæðir snilldin og viskan LoL:
 
Að vera vongóð er viðhorf, sem hægt er að öðlast. Að öðlast trú á æðra máttarvald í lífi okkar mun flýta viðurkenningu okkar á voninni. Með hjálp Guðs og vina okkar munum við sannfærast um að við erum aldrei ein og það er gott. Við munum finna vonina sem við heyrum í rödd annarra.
 
Mér lærist smám saman að það að láta af stjórn, hætta að hafa áhyggjur og spá um afleiðingar, mun valda mér miklum létti.
 
Að lokum:
 
Ég á val um að vera æðrulaus og vongóð um sérhverja framvindu lífs míns.
 
Sannfæring mín um daginn í dag er: "Ég get verið eins vonglöð og hamingjusöm og ég ákveð sjálf að vera"
 
 
Thus endet the lesson LoL! Njótið dagsins, helgarinnar, stundarinnar, mínútunnar og sekúndunnar ef út í það er farið.....þetta augnablik kemur víst aldrei aftur og lifum eins og það sé enginn morgundagur Wizard!
Tjuss Heart!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.9.2008 kl. 15:22

2 Smámynd: Guðný Bjarna

góðar pælingar.... æðruleysi er með öðrum orðum  "að lifa án ótta" og er það sem allir þrá  

ég er nú sem stendur í slagsmálum við rós í garðinum hjá mér sem byrjaði sem lítil sæt planta, en er núna komin út um allt eins og brjáluð jurt sem ég óttast að taki yfir allt annað í mínum garði.... en ég hef trú  að ég hafi betur

góða helgi Sunna til þín og þinna

Guðný Bjarna, 5.9.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 66316

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband