Færsluflokkur: Bloggar

Nammibindindi: Dagur 1!

Nú er sem sagt hafið nýtt tímabil í mínu lífi, en það er einn dagur í einu án sælgætis!

Í dag mun ég segja súkkulaði, lakkrís, hlaupi, ís og kökum stríð á hendur. Þetta allt hefur haft þau áhrif að öll fötin í fataskápnum  mínum hafa minnkað síðustu mánuði og ég á þessa dagana ekkert til að vera í og sé fram á að þurfa að fara í stórinnkaup á fatnaði, ef að ekkert verður að gert Undecided.

Núna sem sagt er fyrsta verkefni að fara í gegnum skápa og hreinsa út sælgætisbirgðirnar og henda í ruslið Crying.

Ég hef nú þegar hlaupið þrjá kólímetra í morgun og búin að fá mér einungis litla dós af melónu skyr.is Wizard.

Ég hef sett mér mánaðarmarkmið, það er að borða ekki nammi til 15. nóvember! Þetta þarf þó að gerast einn dag í einu fram að þeim tíma......Shocking!

Ég er sælgætisgrís og ég get ekki haft nammidaga vegna þess að ég framlengi alltaf nammidaginn minn um ca. þrjá daga...það er borða nammi á föstudögum, laugardögum og sunnudögum!

Þannig, nú er að duga eða henda öllu úr fataskápnum Cool!

En ég er pínu kvíðin fyrir föstudeginum......þá fyrst fer að reyna á sko....WhistlingHalo

tjussss....


Skrýtið....

Stelpunum mínum var boðið í bíó áðan af frænku sinni, unglingurinn minn er að vinna og maðurinn minn að skíra barn! Ég er ein heima og það er svo merkilegt að þegar ég er ein heima á tímum sem að ég er venjulega ekki ein heima, þá veit ég aldrei hvað ég á að gera af mér, ég bara ráfa úr einu í annað og bíð eftir að gengið mæti heim á ný InLove!!

Skrýið.........eða kannski  er þetta ekki skrýtið WounderingWhistling!


Að loknu afmæli....

Húsmóðirin á þessu heimili situr hálf dösuð við tölvuna þessa stundina, er að reyna að komast blogghring eftir fjarvist úr bloggheimum síðan í gærkveldi...horfi með öðru á laugardagslögin, er samt ekkert upprifin en fylgist með til að geta haft skoðun á þessu Whistling.

Dagurinn byrjaði klukkan 10 í morgun í Bónus. Síðan hófst bakstur klukkan hálf ellefu og eldamennsku lauk klukkan 17.00 en þá hófst afmælið með kvöldmat og kökum í eftirrétt.

Mér finnst alltaf gaman að halda upp á afmæli barnanna minna vegna þess að þau lifa sig svo inn í þetta afmælistand af lífi og sál Wizard! Þannig að þetta er búið í bili. Eldri börnin mín eiga bæði afmæli á jólatíma. Sá eldri 20. des og miðjan mín 2. jan. Þannig að þau verða alltaf hálf ringluð á þessum tveimur vikum vegna gjafaflóðsins sem að flæðir yfir þau á þessum tíma! Sú minnsta sagði einmitt við mig í fyrra þegar ég var að undirbúa afmælið hennar hvort að hún gæti ekki fengið að hafa jólatré í afmælinu sínu og lagði mikla áherslu á það. Hún vildi náttúrulega fá eins og systkini sín en þau hafa alltaf jólatré og skraut í sínu afmæli Grin!!

En hér eru nokkrar myndir frá fögnuðinum!! Eigiði gott laugardagskvöld Joyful!

afmæli 004afmæli 006afmæli 014

afmæli 016Þrjár Matthildar!

afmæli 002

Gúdnæt og síjúgæs!

p.s. farin að horfa á Önnu í Grænuhlíð Wizard


Hálfnað verk þá hafið er....

Nú er ég nýkomin heim eftir langan dag. Ég mætti klukkan 9 í morgun á lesstofuna til að vinna að fyrsta kaflanum í kandídatsritgerðinni minni. Klukkan hálf þrjú stóð ég upp, komin með 12 síður og fór og skilaði drögunum.

Nú er ég komin heim og er alveg tóm í hausnum. En ég er svo glöð að vera byrjuð og komin af stað með þetta verkefni og nú veit ég hvað ég þarf að gera næst, hvað ég þarf að laga og hverju ég þarf að bæta við Smile!

Þetta er bara tóm gleði og það að vera komin yfir þann hjalla að geta ekki byrjað að skrifa er svo mikill léttir vegna þess að ég hef átt svo erfitt með að komast á þetta stig að nú er andinn mikið léttari!

Læt þetta nægja í bili......eigiði gott föstudagskvöld Heart....ég ætla upp í sófa, í náttbuxum með DVD og nammi (nammibindindið byrjar ekki fyrr en á mánudag Cool)!


Ókei....

Mig langar ekki að blogga um borgarmálin, ég er of upptekin við að skrifa ritgerð, nema þetta: Mér finnst Bingi vera of mikið fórnarlamb aðstæðna í fréttatímum kvöldsins. Hann er bara miður sín og ber sig aumlega yfir þessu öllu saman. Spurning um að setja saman áfallateymi fyrir hann svo hann komist yfir sambandslitin á sem skemmstum tíma. Það er nauðsynlegt að borgarfulltrúarnir okkar séu ekki með óuppgerða hluti á bakinu þegar stjórna á borginni af heilum og sönnum huga. Við sem þekkjum til vitum hvað það er erfitt að hætta í langtímasamböndum og það getur tekið verulega á andlega að pússla sér saman á ný.

Meira hef ég ekki að segja um þetta mál að sinni nema það að mér finnst Svandís Svavarsdóttir flott kona og ég hefði vilja sjá hana sem borgarstjóra fyrst að svona fór!

En áfram veginn og lengi lifi lýðræðið W00t!


Afmælisbarnið mitt og nammibindindi!

Hér er afmælisbarn heimilisins í allri sinni 5 ára dýrð:

haustbústaður2 038haustbústaður2 039haustbústaður2 033

haustbústaður2 037

Hún fékk smá afmælisveislu í kvöld með köku og kerti! Stóra veislan er á laugardaginn og ég er ekkert smá fegin að klúbbablað Gestgjafans er komið í hús......er alveg desperat að finna nýjar uppskriftir.....pínu leiðinlegt að keyra alltaf á sama heita réttinum og sömu kökunni...Crying

Annars ætla ég að byrja í stóru nammibindindi á mánudaginn kemur, verð að hafa góðan fyrirvara sko. Er orðin pínu oggó óánægð með mig.....fór meira segja á hlaupabretti í kvöld og ég er ekki frá því að ég hafi misst 10 kíló....plús-mínus 1......Whistling

En sem sagt, barnaafmæli á laugardag.....nammibindini á mánudag!

ps. ef að einhver kann góða uppskrift að girnilegum grænmetisréttum, má sá og hinn sami gjarnan deila þeim fróðleik! Ég ætla að vera svo dugleg að elda grænmeti........en þekki bara ekki eina einustu uppskrift að góðum grænmetisrétt!

þangað til næst, góða nótt Sleeping!


Hún á afmæli í dag...hún á afmæli í dag...hún á afmæli hún Matta.....hún á afmæli í dag!!!

Fyrir fimm árum í dag, fæddist litla músin mín, sem fékk nafnið Matthildur Þóra.

sumarbústaður 042

Hún er dæmisgert minnsta barn foreldra sinna sem vita ekkert betra en að vera  í kringum hana, því hún er lífsglöð og kát og skiptir nánast aldrei skapi. Hún vaknar glöð og fer að sofa glöð.

Austfirðir 051

Hún er núna meðal elstu barnanna á leikskólanum og er í skólahóp sem henni finnst ekkert smá flott.

brúðkaup 011brúðkaup 012

Elsku Matthildur okkar. Það er heiður að eiga jafn yndislega og frábæra stelpu og þú ert. Til hamingju með daginn mín kæra InLove!

Þingvellir 017

p.s. ég vil í leiðinni óska Smáralindinni til hamingju með daginn. Elsku Smáralind takk fyrir að vera til og stytta mér stundirnar þegar mér leiðist og þegar ég finn fyrir þörf til að eyða peningum WhistlingWizard!


Samtal við 7 ára dóttur mína!!

Þessar samræður áttu sér stað áðan á leið í búð:

Sú 7 ára: Mamma þegar ég verð stór ætla ég í ræktina!!

Mamman: Jæja elskan!

Sú 7 ára: Mamma, hvort viltu að ég búi í sveit eða fari í ræktina??

Mamman: Þú getur nú bæði búið í sveit og farið í ræktina.....

Sú 7 ára: jaaaaá....en sniðugt!

Greinilegt borgarbarn að tala...móðirin ekki alveg með þetta hver er alltaf að tala um ræktina, því hún sjálf hefur ekki sést í 100 metra nálægð við slíka staði síðan seint á síðustu öld....

En samtalið hélt áfram stuttu síðar:

Sú 7 ára: Mamma, viltu að ég verði konungborin..??

Mamman: það er nú frekar erfitt vina mín, því hvorki ég né pabbi þinn erum konungur eða drottning!!

Sú 7 ára: Okei...þá get ég orðið forsetafrú!

Mamman: Já, en þú getur líka orðið forseti!

Sú 7 ára: Nei, það er bara fyrir stráka!

Mamman (skelfingu lostin): Nei..nei....þú getur vel orðið forseti, það geta konur. Það var kona forseti fyrir nokkrum árum sem heitir Vigdís Finnbogadóttir. Ótrúlega flott kona og fyrsti kvenforsetinn (voða ánægð með mig núna....)

Sú 7 ára: Nei ... núna er strákur forseti og forsetafrú (ætlar ekki að gefast upp).

Mamman: Já en hann bauð sig fram sko...það geta allir boðið sig fram til forseta. Bæði karlar og konur!

Sú 7 ára: Jaaaaaá.....sniðugt og þá get ég það líka!!

Mamman: Alveg rétt Grin!!

Svona geta samræður verið merkilegar í bílnum á leiðinni heim Smile....ég er staðráðin í að ala upp góðan og gegnan femínista Wink og mun ekki gefast upp fyrir svona hugmyndum sem að barnið er með að konur geti ekki orðið hitt og þetta og sá sem er að segja henni þetta má passa sig.....WhistlingW00t!

Eníhú...áfram veginn!!


Þriðjudagur til mæðu....erþaggi??

Kannski er ég að fara dagavillt, mæðudagurinn var víst í gær en hann var samt ekki mæðudagurinn vegna þess að mæðudagurinn er í dag, merkilegt hvernig þessir blessuðu mæðudagar geta aldrei bara komið á réttum tíma Devil!

Það er einnig athyglisvert hvernig maður vaknar stundum og veit hreinlega á fyrstu fimm mínútunum að þetta verður mæðulegur dagur.

Kannski er það vegna þess að það er ansi annasamur dagur framundan og ég sé ekki fram á að vera heima aftur fyrr en um 11 í kvöld Wizard.

En hvað er ég svo að kvarta þetta á opinberum vettvangi. Best að herða sig upp og skófla sér upp úr sófanum og ganga brosandi út í daginn Cool!

gleði, gleði, gleði....gleði líf mitt er....tralalalalal...Whistling!

síjúafteravæl!


Skemmtilegur morgun....

Við hjónin byrjuðum morguninn á því að keyra upp í sveit vegna þess að það gleymdist jakki með bíllyklum af öðrum heimilisbílnum og dagbók eiginmannsins þannig að við fengum okkur svona tveggja tíma mánudagsrúnt glöð í bragði og sungum víxlsöngva á leiðinni....sá ég Spóa .... alveg hástöfum Devil!

Núna er bíllykillinn sem sagt kominn í hús og dagbókin í vasann og lífið getur hafist á ný.

Það er gaman af því hvað lífið færir manni margar skemmtilegar óvæntar uppákomur. Sumir kalla það verkefni .. aðrir vandamál! Ég hugsaði mér í þessu máli: Sunna Dóra .. nú skaltu lifa í lausninni...og bara anda inn.....anda út og sjá!! Allt fór vel!

Eigiði góðan mánudag og lifið í lukku en ekki í krukku Joyful!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband