Þetta var bara flott en....

Hvað var málið með pólsku söngkonuna sem byrjaði atriðið sitt í búri á sviðinu??? Sorrí, ég reyni að vera svona hógvær femínisti svona almennt og yfirleitt Whistling.........en þegar ég sé svona atriði þar sem að búr, stólar og netasokkarbuxur falla í hlut kvenna en karlmenn eru í fullum klæðum þá er mér allri lokið og róttæki femínistinn tekur völdin. Svona atriði er alveg ömurlegt og mér fannst búrið alveg síðasta sort!! Mér var ekki skemmt Cool!

En Eiki var flottastur og ég er ekki hlutdræg!

kl.21.43: *grenj*........Engin Norður-Evrópuþjóð fór áfram.....kannski kominn tími á að endurskoða reglurnar??? Ég nenni ekki að verða svona svekkt á hverju ári Wink. Jæja, ég get þá bara horft róleg á kosningasjónvarpið á laugardaginn, vona að ég fari ekki að grenja líka þá! *snökt*!!


mbl.is Eiríki og félögum tókst vel upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Mér fannst ferkar lítið um svona atriði núna, var að velta því fyrir mér hvort atriðið sem Silvía Nótt var með í fyrra hafi hrist upp í einhverjum.

Ester Sveinbjarnardóttir, 10.5.2007 kl. 21:16

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það má vel vera....! Það er samt bara eitthvað við konur og búr.........Vekur upp pirring hjá mér! Mikið var þetta annars gremjuleg niðurstaða, þó að ég ætlaði ekki að svekkja mig á þessu, þá er ég alveg drullusvekkt!! *dæs*! Kveðja Sunna!

Sunna Dóra Möller, 10.5.2007 kl. 21:42

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vertu viss um að Austur-Evrópa verður þar í efstu sætunum.  Velkomin í bloggvinahópinn!

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.5.2007 kl. 22:27

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Takk fyrir það ! Ætli hræðilega lagið frá Hvíta-Rússalandi eða Georgíu vinni ekki !!Þetta er alveg agalegt, það verður eitthvað að endurskoða reglurnar í þessari keppni, annars hættir þetta að vera gaman og hvað á maður þá að gera í maí þegar að ekkert júróvisjón verður til að hlakka til . Kveðja, Sunna.

Sunna Dóra Möller, 10.5.2007 kl. 22:35

5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ég segi og segi það af sannfæringu! Þetta er ein stór mafía!

Fáránleg úrslitin í keppninni

Margrét St Hafsteinsdóttir, 11.5.2007 kl. 01:20

6 Smámynd: Sigríður Gunnarsdóttir

Ég geri Björgólfana ábyrga fyrir úrslitunum, það voru þeir sem seldu ódýra farsíma þarna austur frá:-(

Sigríður Gunnarsdóttir, 12.5.2007 kl. 09:37

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

....já það væri bara best. Finna einhverja blóraböggla innanlands hahaha

Sunna Dóra Möller, 12.5.2007 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 66281

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband