Færsluflokkur: Bloggar

Annars í aðventublogg!

Sunnudagarnir þessar vikurnar hafa það að markmiði að það er nóg að gera. Ég byrjaði daginn á að taka þátt í fjölskylduguðsþjónustu í Bessastaðakirkju en hana leiddi Sr. Hans Guðberg Alfreðsson. Kirkjan var full af fólki sem kom með börnin sín og þetta var alveg frábær stund. Hafdís Huld kom í heimsókn og tók nokkur lög af nýja disknum sínum "Englar í ullasokkum" og vakti það mikla gleði hjá börnunum á staðnum enda um frábær lög að ræða.

Eftir hádegi hefur líka verið nóg að gera í kirkjumálum og erum við rétt nýkomin heim. Gærdagurinn fór að mestu í Laufabrauðsgerð og Laugavegslabb og það var hreinlega of jólalegt Wizard! Við borðuðum síðan öll heima hjá mömmu og pabba og fengum Hamborgarhrygg (líka of jólalegt Cool) sem var líka of góður InLove!

Það er hreinlega allt sem minnir á að jólin eru að koma núna og ekki skemmir snjórinn fyrir....ég vil meiri snjó en mér sýnist að mér verði ekki alveg að ósk minni ef ég skoða veðurspána fram í tímann, en ég bara loka augunum og vona að þau séu alveg að klúðra þessu á veðurstofunni og spáin sé hundvitlaus. Það er svo mikil birta sem að fylgir snjónum og svo þegar ég horfi út um gluggan og sé alla á skautum á Rauðvatni og ljósin á skíðasvæðinu í Bláfjöllum, að þá bara má ekki snjórinn fara.....hann þarf að hanga inni fram yfir jól, þá má alveg rigna feitt og hitinn fara í 20 stig! Ég held að það sé bara díll....Wizard!

Núna er framundan kósí kvöld og lokaþátturinn af Næturvaktinni en hér er beðið með mikilli spennu eftir þeim þætti!

Eigði gott kvöld og góða viku framundan!

Hér koma nokkrar myndir frá helginni Smile!

tjusss!

Jól1 016Jól1 017Jól1 027

Jól1 028

 

 


Núna dó ég úr hlátri :-)

hlægjaÉg bókstaflega grét úr hlátri þegar ég las þetta, það eru kannski allir búnir að sjá þetta á undan mér en ég set linkinn inn svo að þau sem að hafa ekki séð þetta geti hlegið líka Grin.

Ég segi það og skrifa, Baggalútsmenn eru snillingar, hvort sem að það er nýja aðventulagið eða síðan þeirra Wizard!

http://baggalutur.is/frettir.php?id=3986

Blezzzzzzzzzz.....


Smá helgarkveðja frá mér til þín ;-)!

kertiÉg hef stormað í dag um kringluna, verslað nokkrar jólagjafir og keypt aðrar nauðsynjar sem að farið var að bráðvanta á þetta kærleiksheimili Smile!

Ég er aftur að komast í jólagírinn eftir að hafa aðeins dottið úr honum, ekkert alvarlega þó Whistling  neineinei....ég er sko ekki af baki dottinn þó ég hallist aðeins í hnakknum W00t!

Ég óska ykkur góðrar helgar, ég ætla að gera heilan helling og kannski meira en það.....kannski minna, sé bara til.....ég geri alla vega eitthvað og örugglega nokkuð, alla vega ekki, ekkert Tounge!

Eigiði gott kvöld Heart!


Ég er hér og les og les :-)

Enn er ég meira í lesgírnum en blogg-gírnum! Ég les og fylgist með, komenta við og við en það er líka stundum ágætt að vera á hliðarlínunni Cool!

Annars er vinnuvikunni minni lokið formlega og frí á morgun. Við fengum hátt í 30 krakka í kirkjuna í dag og við föndruðum jólakúlur, jólahjörtu og kransa. Það gekk bara vel og ég er glöð að fram undan eru smá rólegheit, alla vega um helgina Halo!

Ég og mamma ætlum í Kringluna á morgun, ég er ekki byrjuð að kaupa jólagjafir þannig að nú ætla ég að sjá hvort að ég komist eitthvað af stað með það allt saman. Tvö af mínum þremur ástkæru krílum eiga líka afmæli yfir jólin þannig að ég þarf að hugsa fyrir því líka. Ég blanda aldrei saman jólunum og afmælunum þeirra. Held þessu alltaf aðskildu til að þau upplifi bæði jól og afmæli. Þau eiga ekki að gjalda þess greyin að vera fædd á jólum InLove!

Við erum svo jafnvel að plana Laufabrauðsgerð á laugardaginn hjá mömmu og svo kannski þríf ég Wizard (það gerast enn kraftaverk í þessum heimi, ó já) og jafnvel  kíkjum við á kók-lestina, krakkarnir hafa aldrei séð hana og kannski kominn tími til að þau sjái kóka kóla í allri sinni ljósadýrð W00t! Þó að mér finnist kannski ekki gaman að horfa á stóra kókbíla með ljósum, þá kannski finnst krökkunum það gaman, ég á ekki alltaf bara að hugsa um það sem að mér finnst gaman. Það er bara eigingirni og frekja Police!

Á sunnudaginn verðum við sunnudagaskólakennararnir í Bessastaðakirkju með fjölskylduguðsþjónustu og sr. Hans Guðberg Alfreðsson verður með okkur og leiðir. Þessi stund verður á hefðbundnum sunnudagaskólatíma klukkan 11.00. Það verður vonandi bara jólalegt og gott Smile!

Þetta hefur annars verið alveg ágætur dagur og ég hef svo sem ekki yfir neinu að kvarta. Fullt af jólastússi framundan og þá er ég sæl!

Góða nótt kæra fólk og sofið rótt Sleeping!

 


Stundum eru það litlu hlutirnir....

Ég er eitthvað ægilega þreytt þessa dagana, það er mikið að gera í kirkjunni og fullt að stússi í kringum það. Við tókum á móti 300 börnum úr Grandaskóla í jólastund í morgun og svo 20 börn eftir hádegi í 7 ára starf. Þetta gekk allt bara vel fyrir sig allir glaðir!

Ég hef mest megnis bara verið að lesa bloggin í dag, hef einhvern veginn lítið að segja. Fylgist með umræðum og fæ stundum á tilfinninguna að fólk sé að berjast við vindmyllur á alla kanta Wizard!

Þegar ég verð svona yfirkeyrð eins og ég er núna, þá leggst ég í sjónvarpsgláp eða bókalestur. Þá er ég ekki að tala um skólabækur, heldur reyfara og svona bækur sem að fara inn um eitt og út um hitt Whistling! Vegna þessarar tilhneygingar hjá mér, þá er ég algjör sökker fyrir framhaldsþáttum. Ég horfi á ER, Grays, Numbers, Nágranna ofl, ofl. Ég bara hreinlega má ekki missa af þætti. Ég hertek sjónvarpsfjarstýringuna til að passa að enginn annar fjölskyldumeðlimur nái henni og fari að skipta sér af þáttavali.

En á meðan ég horfi á þetta, þá þarf ég ekki að hugsa um flókna hluti og ég hvílist. Hvílist frá daglegu amstri og ég gleymi mér í smá stund. Ég á það til að hugsa of mikið um hluti, ég hugsa mál út frá öllum mögulegum hliðum og hugsanlegum og óhugsanlegum afleiðingum og þegar öll sú krufning er búin þá hef ég yfirleitt ekki komist að neinni tímamóta niðurstöðu og hef frekar flækt málin í hausnum á mér frekar en hitt.

Eftir að ég hef legið yfir amerísku fjöldaframleiddu skemmtiefni, þá er það besta að fara og leggjast hjá stelpunum mínum og halda utan um þær og horfa á krúttlegu andlitin þeirra og hlusta á rólegan andadráttinn þeirra á meðan þær sofa og sofna að lokum sjálf Sleeping!

Það er það besta, það eru litlu hlutirnir sem að skipta svo miklu máli, en um leið eru þeir það stærsta og dýrmætasta í lífinu InLove

Góða nótt hvar sem þið eruð, hver sem þið eruð, hvaða trú sem þið hafið og jafnvel þó að þið hafið enga trú Halo. Sofiði rótt!


Jæja...hvað segiði gott :-)

svefnÞað er eitthvað svo lítið að gerast hjá mér að ég finn ekkert til að blogga um!! Mér finnast fréttirnar annað hvort of leiðinlegar eða of alvarlegar til að hægt sé að tjá sig um þær af viti! Síðan er einhvern veginn lífið bara eitthvað svo venjulegt LoL! Já, stundum er lífið bara ****** venjulegt og ekkert markvert sem að drífur á dagana.

  1. Ég er búin að segja frá jólaseríunum og uppsetningunni á þeim.
  2. Ég er búin að segja gleðilega aðventu við ykkur og algjörlega vita gagnslaust að segja það aftur og aftur....jú nó! Endurtekningar virka ekki hér, bara í Teletubbies Whistling!
  3. Ég er búin að sýna ykkur myndir af jólaljósunum, ekki hægt að vera alltaf að sýna myndir af sömu ljósunum.
  4. Ekki get ég endalaust fleygt inn myndum að börnunum mínum, þó þau séu bestust, flottust, skemmtilegust, sætust, gáfuðust og allt InLove! Ekki vil ég að aðrir verði öfundsjúkir....alla vega ekki í desember Pinch!Þetta er skrifað af dæmalausri hlutdrægni, því hverjum finnst sinn fugl fagur og engin börn eru fallegri en manns eigin. Ég set þetta inn svo að enginn fái það á tilfinninguna að ég sé að segja að annarra börn séu ekki falleg Cool! (Þau eru bara ekki eins falleg og mín Tounge)
  5. Ekki get ég endalaust sagt frá ritgerðarskrifunum....það er of boring og mér verður hent út af moggablogginu Devil.
  6. Ég er búin að segja frá því þegar ég var ofurþreytt og gleymdi öllu!
  7. Ég er orðin yfir mig þreytt á þessum endalausa kítingi milli hinna trúlausu og hinna trúuðu. Hvernig væri að komast bara að niðurstöðu í þessum málum sem að steytir á. Það þurfa örugglega allir að gefa eitthvað eftir, en það er kominn tími á lendingu milli þessara hópa. Hvernig væri að slíðra sverðin, alla vega yfir jólin og tala um eitthvað annað. Við getum þess vegna skipst á kalkúna uppskriftum, rætt um steikingartíma á rjúpu eða hvort það sé betra að borða heitan eða kaldan hrísgrjónagraut Smile!

Ég á eftir að segja frá:

  1. Að ég fékk loksins Georg Jensen óróann, takk mamma Wizard og tvær stórar Lindt rjómasúkkulaði plötur að auki....
  2. Ég mun taka á móti 500 börnum í kirkjuna á næstu tveimur vikum, þeim verður gefið kakó og síðan verður jólahelgistund!
  3. Ég föndraði jólaskraut með 40 sex ára börnum í dag, það var gaman og mikið fjör Wizard!
  4. Ég ætla að halda áfram að föndra út þessa viku.
  5. Þann 18. des er ég komin í jólafrí!
  6. Ég svindla alltaf á möndlugjöfinni og stjórna hver fær hana á þessu heimili.
  7. Börnin mín eru búin að fatta það, ætli ég fái hana ekki bara í ár Grin!

Jams, svona hef ég lítið að segja og læt þessi fátæklegu orð nægja að sinni. Verið hress, ekkert stress og bless.

Góða nótt HeartSleeping

 


Fyrsti sunnudagur í aðventu!

Skírn 012Ég vildi bara óska ykkur gleðilegrar aðventu sem að nú í dag hefst með pompi og pragt Wizard. Njótið ljósanna, kyrrðarinnar og hvers annars á þessum tíma þegar nálgast heilög jólahátíð.

Eigði gott kvöld og góða nótt og enn betri vinnuviku framundan Heart


Ofurþreyta í gangi!

hómerÞetta er búið að vera vika dauðans! Ég var að skila í dag 2. hlutanum í embættisritgerðinni minni og náði að skrifa nánast allan kaflann á 5 dögum, með því að sitja við sveitt og skrifa og lesa til skiptis. Ég á þó smá hluta eftir en fékk fín viðbrögð og er bara sátt og sæl Wizard!

Vikan fólst í því að ég skrifaði á morgnana og var í kirkjunni á daginn og kom heim á kvöldin og skrifaði. Síðan hélt ég í millitíðinni tvö matarboð, þannig að þetta er búið að vera ansi kreisí Whistling!

Núna er ég gjörsamlega búin á því, ég man ekkert hvort ég er að koma eða að fara. Ég átti að fara á pósthús á leiðinni heim, gleymdi því. Ég þarf að baka fyrir morgundaginn vegna þess að bróðir minn er að láta skíra litla prinsinn sinn en ég eyðilagði botnana í kökuna áðan Pinch! Ég hef ekki eyðilagt köku í mörg ár, en núna varð þetta að einni drullu.

Ég er samt ánægð með þessa viku en mikið er ég fegin að hún er búin. Ég ætla að fara að sofa snemma og baka í fyrramálið, trúi að nýr dagur verði mér betri í þeim efnum en þetta kvöld.

Eigiði góða helgi! Lengi lifi lýðveldið og kristinn siður LoL!

Með "ofsa"-trúarlegri kveðju Tounge,

Sunnatunna!


Eigum við ekki bara að leggja niður jólin!

Ég mæli með því til þess að við mismunum ekki þeim sem eru Vottar Jehóva að við leggjum niður jólin. Það er ekki hægt að hópur fólks þurfi að flýja í Húsafell á hverjum jólum á meðan við hin göngum um með sælubros á vör, stútfullan maga af mat og drekkhlaðið borð af gjöfum. Mér finnst þetta hin argasta mismunun og skil ekki af hverju fólk hefur ekki vakið athygli á þessu máli fyrr vegna þess að hér er um stórt réttlætismál að ræða!  

Við skulum um leið leggja allt niður sem að minnir á þessa alda gömlu hefð í okkar samfélagi, hættum að nota aðventuljós, þau eru jú gyðingleg að uppruna og notkun þeirra mismunar þeim sem eru augljóslega ekki gyðingar. Hættum að gefa jólagjafir vegna þess að þær eru komnar til vegna gjafa vitringanna þriggja til Jesú á jólanótt, það er augljós mismunum á þeim sem að eru ekki kristinnar trúar. Síðan skulum við hætta að vera með jólatré vegna þess að sá siður liggur í fornri trjádýrkun og verið er augljóslega að mismuna öllum sem að trúa ekki á trjáguðina og dýrka ekki tré. Síðan en ekki síst hættum þessu ljósarugli í gluggunum, það minnir augljóslega á ljósahátið Gyðinga og á Jesú sem er hið sanna ljós sem að kom í heiminn til að færa fólki sinn frið og notkun þessara ljósa mismunar augljóslega öllum þeim sem að trúa ekki svona vitleysu Pinch.

Hættum allri þessari mismunum, leggjum þetta allt niður og þá verða allir glaðir, allir sáttir. Engin afstaða lengur, allir lausir við lífskoðanir og síðan en ekki síst allri mismunun hætt.

Burt með jólin, burt með blessuð litlu jólin!

Þess má geta að undirrituð er frekar tæp þessa dagana vegna skila á áfanga í embættisritgerð og hefur litla þolinmæði fyrir bulli!

Bull, ergelsis og pirringskveðjur frá vitleysingnum í Austurbænum W00t!


Áhugaverð tilvitnun!

Ég rakst á áhugavert efni í bók sem að ég er að notast við þessa dagana í skrifunum mínum og fjallar kaflinn sem ég var að lesa um vandamálið við að finna og skrifa sögu kvenna.

Mér fannst þetta einnig merkilegt í ljósi umræðunnar um feminista sem að fer nú offari hér á netinu, oftar en ekki frá karlmönnum sem að finna konum sem að aðhyllast þessa hugmyndafræði allt til foráttu og spara ekki stóru orðin í þessari ádeilu herferð sinni gegn þessari hugmyndafræði.

Þessi tilvitnum vakti mig til umhugsunar og ég læt hana fylgja hér með öðrum til ánægju og yndisauka:

Hugmyndir karlmanna um konur, endurspegla ekki sögulegan raunveruleika kvenna þar sem að hægt er að sýna fram á að hugmyndafræðileg ádeila um stöðu kvenna, hlutverk eða eðli þeirra eykst um leið og raunverulegt frelsi kvenna eykst og raunveruleg þátttaka þeirra í sögunni verður sterkari.[1]

[1] "In memory of her", bls. 85.

Þangað til næst Smile!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband