Færsluflokkur: Bloggar

Þetta er allt gott og blessað en.....

Ég er m.a ánægðust með þetta í stefnuyfirlýsingunni:

"Trúfélögum verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra."

kveðja Smile


mbl.is Ágreiningur um þjóðareign á náttúruauðlindum verði leiddur til lykta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3-3!

Þetta líst mér betur á! Held að Jóhanna, Ingibjörg og Þórunn muni standa sig vel!

Hér er lýst yfir í verki að jöfn staða kynjanna er hið rétta þegar kemur að skipan ráðherra í ríkisstjórn! Til hamingju með þetta Ingibjörg og Samfylkingin öll!!

Ég er afar sátt! Cool


mbl.is Þrjár konur og þrír karlar ráðherrar fyrir Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pínu svekkt yfir þessu!

Þó að ég sé afar ánægð með þessa nýju stjórn, þá verð ég að viðurkenna að ég hefði viljað sjá jafnari hlutföll kynja í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins! Ég dreg nú ekki dul á það! Hvernig á að jafna almennt hlut kynja á vinnumarkaði ef að ríkistjórn Íslands styður ekki þá þróun opinberlega í verki!! Ég hugsa að Samfylkingin muni vinna þessa lotu þegar kemur að ráðherravali og hlutfalli kynja! Það kemur þó í ljós á eftir!


mbl.is Guðlaugur Þór verður heilbrigðisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upprisan!

Enn af fræðum sem liggja á borðinu hjá mér. Í dag er það upprisan. Já, það er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur enda er ég stórhuga með eindæmum í dag og þakka það góðum hádegismat á Salatbarnum og gönguferð í framhaldinu í Elliðaárdalnum! Nú er það fræðimaður sem heitir Stephen J. Patterson sem hefur orðið fyrir valinu og ég gef honum orðið. Eftirfarandi er tekið úr bók sem heitir "Beyond the Passion. Rethinking the death and the Life of Jesus":

Í dag þegar talað er um upprisu er átt við upprisu Jesú Krists. Það staðsetur okkur innan annars ramma en fornaldarhugmyndir voru í. Í fornöld áttu menn ekki erfitt með að trúa á upprisu per se. Upprisa var algengur þáttur í flestum trúarbrögðum fornaldar. Hér var um að ræða örlög margra spámanna, píslarvotta og hetja. Marteinn Luther King, Gandhi og Lou Gehrig hefðu verið sterkir kandídatar í að rísa upp skv. stöðlum fornaldar. Aftur á mótu var Jesús það ekki. Hann var ekki spámaður, dauði hans var aftaka ekki píslardómur. Hann lifði í fátækt og dauði hans var í skömm og langt frá því að vera hetjulegur. Upprisa í fornöld var ekki fyrir þannig lítils megnandi fólk. 

Í fornöld var sú grundvallarhugmynd að einhver deyi og vakni á ný til lífs ekki einstök. Jafnvel í Nt þá er hún ekki einstök sbr. söguna af upprisu Lasarusar í Jh. 11 og dóttur Jaírusar í Mk. 6.35-43. 

Páll lítur jafnvel ekki á upprisu Jesú sem einstaka, heldur sem fyrsta af mörgum sbr. 1. Kor. 15.20. 

Það er mikill munur á því hvernig fólk til forna og nútímamenn tala um trú sína á hinn upprisna drottinn. Fyrir nútímafólk er upprisa ómöguleg nema í tilviki Jesú Krists. Þess vegna er þetta orðinn einstakur atburður í ímyndun okkar, atburður sem sannar að við höfum rétt fyrir okkur varðandi Jesú, son Guðs. Til forna var upprisa vel möguleg. Það var það sem átti sér stað hjá hetjum og guðum. En Jesús passaði ekki vel inn í þá mynd.

Fornaldarfólk trúði á upprisuna en það hefði að öllum líkindum ekki litið á Jesú sem líklegan kandídat! Dauði hans var ekki dauði hetju. Hann var fæddur af almúgafólki og dó sem sakamaður. Samt var talað um hann á sama hátt og var talað um Herkúles, Aesklepíus eða Sesar. Hvers vegna?? 

Lítum fyrst á 1. Kor. 15.3. Þessi texti er líklega eldri en bréfið og líklegast eitthvað sem að Páll tók við frá öðrum. Honum var kennd þessi formúla og hér flytur hann hana áfram.  Raunveruleg rök Páls hér eru þau að Kristur hefur verið reistur frá dauðum – það er eitthvað sem að allir Korintubúar myndu samþykkja. Þetta var innihald vitnisburðar Páls sem að hann hafði fært þeim í upphafi.

Hafa skal í huga að hjá Páli var upprisa Jesú fyrsta af mörgum sem koma skyldi. Þetta var upphafið á miklu cosmísku drama þar sem að valdahlutföllum heimsins yrði kollvarpað. Hér kemur hugmyndin um upprisuna úr gyðinglegu umhverfi. Bæði upprisan og apókalyptismi ávarpa sama grundvallar álitamálið: Hvað gerist þegar líf og dauði eru ekki vitnisburður um hið góða og hið illa. Þegar hið illa lifir og hið góða deyr, hvar er Guð og skiptir þetta hann máli. 

Í gegnum 1. Kor. 15 talar Páll máli píslarvottanna. Þeir sem hafa dáið og þeir sem að hætta á dauða, munu ekki glatast. Þetta er mikilvægi upprisunnar. Hugmynd hans um upprisuna er líkamleg. Þetta var mikilvægt í ljósi líkamlegra þjáninga píslarvottanna. Píslarbókmenntir dvelja við líkamlegar þjáningar pyntinga, varnarleysi líkamans og nauðsyn þess að hefja sig yfir þær ógnir sem að steðja að líkamanum af hendi óvinarins.  Upprisa Jesú sem fyrsta af mörgum sem koma á eftir er fullvissa um að dauði píslarvottanna er ekki án tilgangs.  

Sannanir fyrir upprisu Jesú í sjálfu sér eru ekki miklar. Þær geta virkað miklar í dag fyrir kristna en það er vegna þess að hefðin hefur kennt okkur að líta á allt í Biblíunni sem hafið yfir allan vafa. Það er einnig vegna þess að það er ekki eins mikið í húfi fyrir okkur í dag eins og áður fyrr. Það blasir t.d ekki við okkur að líða píslarvætti. Andstæðan er frekar málið. Við erum hvött og verlaunuð af kirkjunni okkar og menningunni fyrir að trúa á upprisu Jesú.  

Hvað ef að það að trúa á Jesú merkti það í dag, að yfirgefa heimili sitt og hætta á lífstíl sem væri erfiður og gæti jafnvel sett okkur í lífshættu gagnvart ríkinu. Hvað ef að það merkti að ögra gildum menningar sem myndi ekki samþykkja það með yfirveguðum hætti. Hvað ef að yfirlýsingarnar um upprisuna í frumkristnu samhengi hefði verið nóg til að sannfæra fólk um að allar þessar fórnir væru virkilega þess virði. Höfundur efast um þetta!!

Fylgdarfólk Jesú þurfti meira en kraftaverk. Kraftaverk voru þekkt í fornaldarsamhengi og upprisa var hluti af trúarbrögðum þeirra. Fyrir fylgdarfólk Jesú, var trú á það kraftaverk að Guð reisti einhvern upp frá dauðum ekki vandamál. Vandamálið var að Guð reisti Jesú upp frá dauðum!! 

Það sem er merkilegt hér er það að Jesús hafði ákveðna sýn sem að laðaði að sér trygga fylgismenn. Hann hafði ástæðu sem var Guðsríkið. Allt það fólk sem að fylgdi honum trúði á það sem hann stóð fyrir, sem einn af hinum Guðs réttlættu. Ef að óvinurinn átti að finna hann og drepa, mun fylgdarfólk hans hafa trúað af öllu hjarta að Guð forfeðra þeirra, Guð réttlætis og réttvísi myndi endurleysa hann frá þjáningum sínum og reisa hann til lífs.  Þau trúðu að Guð myndi reisa Jesú frá dauðum af því að þau trúðu á Jesú. Það skipti þau ekki máli að hann var ekki hetja skv. stöðlum fornaldarinnar.

Fólkið sem að fylgdi Jesú var sjálft lítilsmegandi og utangarðs. Jesús var maður sem að sannfærði fólkið um að það sjálft skipti Guð máli. Þessi maður var hetjan þeirra, þeirra spámaður. Það er þess vegna, þegar að lokunum kom að þau lýstu yfir upprisu hans. Þau gátu gert það á þeim degi sem að hann dó og hugsanlega gerðu þau það. 

Átti eitthvað sér raunverulega stað??? 

Til viðbótar við píslarsöguna þá minnist Páll einnig á leyndardómsfulla hluti eins og birtingar! Jesús birtist Kefasi og síðan hinum 12. Síðan birtist hann meira en 500 bræðrum og systrum á sama tíma, einhverjir eru enn á lífi aðrir hafa sofnað osfrv.

Hið andlega líf sem að Jesús kom í kring með fylgdarfólki sínu fyrir dauða hans, hætti ekki þegar hann dó. Það hélt áfram. Nú gat fólkið ekki bara talað um anda Guðs á meðal þeirra heldur einnig anda Krists.  Það var í gegnum Jesú sem að fólkið reyndi fyrst Guð á þennan nýja hátt. Þegar fólkið hélt áfram að reyna anda Guðs eftir dauða Jesú, kallaði það fram það að fólkið reyndi anda Guðs, í gegnum anda Krists.

Þannig má skilja 1. Kor. 15 og staðhæfingu Páls að 500 hafi reynt hinn upprisna Krist á sama tíma. Þessi períkópa á líklegast ekki við að risavaxinn Kristur birtist frammi fyrir hundruðum. Þetta vísar til andlegs algleymis, sem var reynt af mörgum sem að kom saman í tilbeiðslu. Þessar stundir í andlegu algleymi, sem var reynd bæði einstaklingsbundið og í samfélagi varð nú reynsla af hinum upprisna Kristi. 

Fyrir marga varð þetta lýsandi reynsla í fylgdinni við Jesú. Það er þessi andlega reynsla sem að fæddi af sér kristindóminn sjálfann!! Þessar “birtingar” Jesú til sinna nánustu fylgdarmanna hans varð fyrir þá staðfesting á kennivaldinu til að halda áfram því sem að Jesú hafði þegar hafið. Þetta varð þeirra postulega vald! 

Spurning um ákvörðun! 

Þegar allt kemur til alls að þá eru að sjálfsögðu hinar andlegu upplifanir hina frumkristnu ekki sannanir fyrir því að Jesú reis upp frá dauðum eða að hann var sonur Guðs. Fyrir hina fornu er allt eins mögulegt að þessum sögum hefði getað verið hafnað, sem hreinum draugasögum.  

Nútímafólk gæti talað um þessar birtingarsögur sem fjölda-hysteríu eða sem sorgarreynslu að sjá aftur þann sem maður elskar eftir að hann er nýfallinn frá, eitthvað sem að algengt er að fólk tali um í dag. 

Tvíræðnin að baki þessum reynslusögum er enn og aftur merki þess að staðreyndin er sú að kristin trú á ekki uppruna sinn í þessum sögum.  Fylgdarfólk Jesú talaði um algleymis trúarreynslu sína á þennan hátt, sem reynslu af hinum upprisna Kristi, vegna sannfæringar sem að á rætur að rekja til annars upphafs. Sannfæring þessa fólks byrjaði löngur fyrir dauða hans. Á þeim degi þegar allt í einu það heyrði rödd Jesú og hann mælti og sagði eitthvað sem að hreyfði innilega við fólki. Í hans félagsskap lærði fólkið að þekkja Guð. Í rödd Jesú hljómaði rödd Guðs. Með starfi hans lærðu þau að þekkja ríki Guðs. Fólkið tengdist honum og sýn hans um nýtt ríki, nýjan heim sem var að fæðast. Það trúði á hann. Þegar hann dó þá vissi fólkið að andi Guðs sem að það hafði reynt í orðum Jesú og gjörðum yrði ekki út kastað.  

Fylgdarfólk Jesú trúði ekki á hann vegna upprisunnar. Það trúði á upprisuna vegna þess að það hafði fyrst trúað á hann og á hið andlega líf sem að hann bjó þeim. Þetta er að lokum það sem að upprisuyfirlýsingin snýst um. Hún snýst um þá ákvörðun að trúa á Jesú og gefa sjálfa sig andanum til að hann uppgötvi þig í hans lífi!!  


Pirraði maðurinn....

Rosalega held ég að það sé erfitt að vera alltaf svona reiður!

Vonandi fer hann Steingrímur að verða aðeins glaðari og takmarka reiðilesturinn gagnvart öðrum stjórnálamönnum og flokkum .

Og sjá.......kannski kemst hann í ríkisstjórn einhvern tímann...........kannski.....hugsanlega.....jafnvel....Wink

Hann bara klúðraði þessu núna og situr eftir! Kannski þarf hann að líta í eigin barm eins og Framsókn.......Hann og Jón Sigurðsson geta jafnvel skellt sér í frí saman til að laga samskiptin og biðja hvor annan afsökunar á hinu og þessu. Þeir þurfa jú að öllum líkindum að vera saman í stjórnarandstöðu næstu fjögur árin Tounge

Þangað til næst og jafnvel fyrr en ella....

sunna


mbl.is Steingrímur: Ingibjörg hefur afsalað sér umboðinu til stjórnarmyndunarviðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðarlegt!

Mikið er þetta neyðarlegt fyrir framsóknarflokkinn þessi ummæli sem að hafa fallið síðustu daga í fjölmiðlum. Guðni sló í gegn í gær í Kastljósinu með samsæriskenningarnar sínar og nú í dag Jón Sigurðsson.

Hvernig væri nú að hætta með yfirlýsingarnar í fjölmiðlum og hætta að kenna öðrum um ófarirnar og líta í eigin barm. Það gæti leynst ýmislegt þar sem að vert væri að skoða.

Ef Flokkurinn heldur áfram á þessu róli þá er best bara að skella sér í gott frí til Kanarí!! Sumar og Sól geta gefið nýja sýn á hlutina Cool!

Ég mæli hér með að þessi ágæti flokkur fari í gott fjölmiðlafrí og taki sig saman í andlitinu og axli ábyrgð á eigin stöðu!

Það er mín skoðun Cool......ég er að vera pínu þreytt á þessu væli að allt sé Sjálfstæðisflokknum að kenna........


mbl.is Jón Sigurðsson: Staðfestir trúnaðarbrest milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnébeygjur!

Ég mætti á danssýningu í skólanum hjá Sigrúnu Hrönn 7 ára dóttur minni í gær! Það er svo sem ekki frásögum færandi nema að í lok sýningarinnar áttu börnin að bjóða foreldrum sínum upp í dans. Ég stóð mína pligt og tók mér stöðu á gólfinu með spenntri dóttur minni og reyndi að bera mig vel.

Síðan tók við dansinn, þetta var einhver ægilegur tvistdans þar sem átti að gera hnébeygjur á milli þess að það var tvistað. Ég fórnaði mér í dansinn fyrir barnið og nú í dag hefði ég betur sleppt þessu.

Ég hef ekki getað gengið nema að finna til í lærunum. Ég er gjörsamlega undirlögð af harðsperrum og ber mig afar illa Whistling.

Þetta minnir mig á síversnandi líkamsástand sem og að það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera foreldri Cool !

 


Orð kvöldsins!

 Eftir að hafa fylgst með formönnum stjórnmálaflokkanna í kvöld eru orð kvöldsins klárlega þessi:

"Ég útiloka ekkert"

Það er ljóst að daður dauðans er hafið og allir vilja vera vinir Geirs! Hann bara situr sæll og brosir enda veit hann að hann hefur þetta í höndum sér fyrst um sinn, það hlýtur að vera óskastaða hvers stjórnmálaforingja!

Það verður fróðlegt að fylgjast með og enn fróðlegra að sjá hvort að Framsókn takist enn á ný að vera lykilmenn í stjórnarmyndunarviðræðum, annars vegar með sjálfstæðisflokki eða þá sem verra væri í R-lista stjórn Crying. Mér finnst bara að Framsókn eigi að fara í smá pásu og að það þurfi byggja flokkinn upp eftir svona slæmt kosningatap! Sérstaklega þar sem að formaður flokksins komst ekki inn á þing. Mér finnst bara ekki stætt að flokkur í þeirri stöðu fari í ríkisstjórn!

En nú ætla ég að horfa á 24 og gleyma þessu stjórnmálaveseni um stund. En ég útliloka ekki að ég muni fylgjast vel með þessu áfram! Þetta er jú barasta ansi spennandi! Cool

 


Voðalegt er þetta!

Kannski bara vilja ekki allir gifta sig..........kannski vilja einhverjir stunda kynlíf fyrir hjónaband.......stundum eignast pör meira segja börn fyrir hjónaband.....hugsa sér!! Voðlega kemur einkalíf fólks öðrum við, svo mikið að fólk safnast saman þúsundum saman til að skipta sér af einkalífi annarra og mótmæla auknum lagalegum réttindum þeirra! Mér finnst þetta hjónabandsdrama orðið svolítið yfirgengilegt. Um leið og fólk er komið í hjónabandið, þá er allt leyfilegt.........jafnvel heimilsofbeldi og hjónabandsnauðganir svo að eitthvað sé nefnt. Hjónabandið er orðið einhvers konar stimpill á velsæld og hamingju!

Bara að að vera giftur og þá er allt í lagi.....enginn mótmælir réttindum þínum né skyldum! Allt annað er subbuskapur og annars flokks!

Mér finnst þetta dapurleg frétt og fæ tilfinningu eins og við séum að stefna beint aftur á myrkar miðaldir!

Ég segi bara eins og Soffía frænka: Fussum svei!!


mbl.is Ítalar mótmæla réttindum fólks í óvígðri sambúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við kíktum á morgunbaðið...

og þetta var alveg ofboðslega flott.......en mikið rosalega var okkur kalt. Ég hélt að ég myndi deyja á tímabili úr kulda og 4 ára dóttir mín grét allan tímann af því að hún var svo hrædd við rokið!

En það var samt þess virði að drífa sig og sjá þetta, því eftir á þegar komið var inn fannst stelpunum þetta mikil upplifun!! Smile

 


mbl.is Risar takast á í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband