Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
4.1.2008 | 20:54
Langar að blogga en hef svo afskaplega lítið að segja :-)!
Það er ansi hreint mikið álag að langa til að blogga en hafa lítið að segja, það er alveg bara óþolandi og ég bara skil ekki þetta vesen hjá mér
.
En ég get sagt frá því að eiginmaðurinn er að fara til Kenía eftir 10 daga. Hann er að fara með hópi presta og er ætlunin að skoða Pokot og að fara inn í Úganda líka. Hann flýgur til Nairobi og ég vona að mönnum takist að stilla til friðar áður en að þeir fara, því það yrði bæði gremjulegt að þurfa að fresta þessari ferð því að hún hefur verið í undirbúningi í á annað ár og líka erfitt að þurfa að fara út í einhverja óvissu og hættuástand. Þá yrði ég alla vega ekki róleg. En hann verður 17 daga í burtu og ef að allt fer vel þá verður þetta án efa ótrúlega spennandi og áhugaverð ferð.
---
Í augnablikinu stendur yfir afmæli fermingarbarnsins og er hann með fimm stráka hjá sér í Pizzu og DVD. Af hamaganginum að ráða gæti maður haldið að hér væru 6 fílar á ferð... en þetta fylgir bara afmælum og ég er bara róleg eins og alltaf og brosi gegnum tárin
!
Annars er ég nú bara að blogga svona til að sýna lífsmark...stefni á tímamótablogg sem mun komast í heitar umræður (án efa...hver vill ekki komast í heitar umræður...duhh...) innan tíðar........þannig bíðið spennt en ekki of spennt því þá verður biðin svo löng
!
Ég sendi ykkur síðan mínar bestu kveðjur um góða helgi og passið ykkur á því að fjúka ekki í rokinu !
Sunnatunna!
2.1.2008 | 13:01
Afmælibarn dagsins :-)
Er Sigrún Hrönn Bolladóttir. Hún fæddist 2. janúar árið 2000 og hefur kennitöluna 020100 og hefur verið kölluð m.a. niðurtalningin og tímasprengjan
! Hún er frábær stelpa og er í dag orðin átta ára gömul
!
Hér er afmælisbarnið á nýjum sleða sem að hún fékk í jólagjöf frá foreldrum sínum en vegna flensu hefur ekki mikið verið hægt að nota hann, við vonum bara að það snjói bara og snjói áfram
!
Hér eru öll barnabörn mömmu og pabba saman komin á gamlárskvöld. Afmælisbarnið er þarna mitt á meðal í jólakjólnum sæl og glöð!
Litla systir fær að hjálpa til við að opna pakkann og það er um að gera að vera góð við stóru systur svo að hún fái að leika líka með nýja dótið
!
Til hamingju með afmælið sætust, þú ert líf okkar og yndi og við erum endalaust stolt af þér mín kæra !
29.12.2007 | 15:23
Það eru áramót!!
Eins og marfalt hefur komið fram að þá elska ég jólin út af lífinu og allt sem þeim fylgir! Mér finnst tíminn milli jóla og nýárs líka fínn, svona eiginlega biðtími eftir næstu stórskotahríð sem eru blessuð áramótin! Ég hef svona blendnar tilfinningar í garð þeirrar hátíðar og hef haft lengi! Mamma eldar besta mat í heimi á þeim degi, sem erKalkúnn með bestu fyllingu sem að er búin til á Íslandi í dag og ég er ekki að grínast
!
Við erum sem sagt hjá foreldrum mínum um áramótin, pabbi kaupir sprengjur og krakkarnir taka þátt í því með honum og finnst það ekki leiðinlegt ! Þegar áramótin sjálf bresta á, þá sit ég yfirleitt fyrir framan RUV og horfi á árið hverfa og nýtt birtast. Þá verð ég oft svo undarlega döpur. Mér finnst einhvern veginn sorglegt að horfa á tímann hverfa svona og nýjan koma fram. Nýtt ár er svo óráðið og óskrifað og mér finnst alltaf pínu erfitt að vita ekki endinn, enda les ég alltaf endann á bókum fyrst og hef gert það síðan að ég varð læs
!
Nýársdagur er í mínum huga líka oft eitthvað svo grár og ég hef einu sinni farið í messu á þeim degi hjá Bolla og þá var spilað á selló alveg undurfögur tónlist og maður sá tár á mörgum hvörmum í messunni þann dag. Kannski erum við öll að einhverju leyti hugsi á þessum degi! Höfum átt gott eða slæmt liðið ár og við kvíðum að einhverju leyti því ókomna! Alla vega í þessari messu komst ég að því að ég var ekki ein um að vera viðkvæm á þessum degi og það var bara góð tilfinning.
Mér finnst árið sem að er að bresta á einhvern veginn meira óráðið en oft áður og ég veit stundum ekkert hvað gerist eða hvernig það fer. Ég þarf að gefa í með ritgerðina mína, vegna þess að ég þarf jú að útskrifast ! Síðan veit ég ekkert hvað tekur við eftir það. Mig langar að læra meira og fara í framhaldsnám, en það er líka álag á stórri sjölskyldu að vera alltaf að læra. Mér finnst einnig gaman að starfinu mínu í Neskirkju og mér gengur sífellt betur að fóta mig í barna og æskulýðsstarfinu og fæ sífellt meiri reynslu þar, þannig að mig langar líka til að drífa mig og klára starfsþjálfunina og fá embættisgengi en svo finnst mér ég líka langt i frá tilbúin til þess
. Svona ruglingslegar hugsanir sækja á um áramót og það er kannski bara eðlilegt þegar ákveðin tímamót eru framundan á svo margan hátt á þessum bæ. Það þarf bara að pússla rétt saman, þá næst yfirleitt ásættanleg niðurstaða.
Ég vona að árið verði farsælt á svo margan hátt, það er aldrei hægt að komast í gegnum heilt ár án þess að verða fyrir einhverjum vonbrigðum, upplifa líka gleði og hamingju og allar þær tilfinningar sem að fylgja því að vera til og lifa og elska.
Ég alla vega ætla að gera mitt besta á þessu ári, ef að mér mistekst eða ég hrasa, þá stend ég bara upp aftur og held áfram. Restina læt ég í hendur Guðs og ég veit að trúin mín kemur mér langt, hún hefur gert það hingað til. Trúin er það sem ég á þegar á móti blæs og hún er það sem ég þegar mér líður vel, því þá þakka ég fyrir það sem að ég á og það sem að mér hefur verið gefið. Það er ekki lítið að eiga falleg og heilbrigð börn, eiginmann sem að er það besta í heiminum og stóra fjölskyldu sem að er alltaf til staðar!
Ég er því þakklát við þessi áramót og reyni að horfa hugdjörf fram á veginn, hlutirnir hafa jú oft tilhneigingu til að fara á þann veg sem að þeim er ætlað og mín von er sú að svo verði áfram!
Blessíbilinu !
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.12.2007 | 17:32
Það verður hóstað út öll jólin....
Jams...hér hafa verið sannkölluð flensujól! Mattan mín veiktist á laugardaginn var (22. des) og í dag er fyrsti dagurinn síðan þá, sem að hún mælist hitalaus að morgni! Sigrún Hrönn lagðist svo á jóladag og ég sjálf er búin að vera stútfull af kvefi! Af þessum sökum hafa þetta verið örlítið undarleg jól, samt ekkert verri en önnur þar sem að við höfum haft það hreint ágætt hér innandyra, eðlilega ekki farið mikið út úr húsi. Vonandi er þetta nú í rénun og við verðum í betra formi um áramót!
Ég set hér inn nokkrar jólamyndir og óska ykkur um leið góðra og slysalausra áramóta og farið ekki í fýlu yfir auglýsingahléinu í skaupinu, gott að nota til að skjótast á klósettið eða til að fylla á glas sem er orðið tómt til dæmis ...þetta er bara spurning um björtu hliðarnar! Sjáumst í betra bloggformi á nýju ári og takk fyrir liðin blogg
!
blessíbili!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.12.2007 | 13:25
Jólabæn!
Ég fann þessa fallegu bæn í bænabókinni sem að kom út fyrir síðustu jól og er eftir Karl Sigurbjörnsson biskup. Mér fannst við hæfi að setja hana inn hér í dag, þegar tveir dagar eru til jóla .
Minnstu Drottinn kirkju þinnar sem að nú heldur heilög jól. Lát jólaengil þinn vitja barna þinna allra með gleðiboðin um frelsarann sem fæddur er. Lát frið hans og birtu gagntaka hverja sál og ríkja í hverjum ranni. Drottinn Guð, englar þínir sungu um frið á jörðu. Blessa þau sem nú eiga jól í skugga átaka og ógna, fordóma og kúgunar. Gef frið meðal þjóða. Leið alla menn á veg réttlætis og sáttagjörðar. Vak yfir þeim sem halda jól í myrkri sorgar og harma, hugga þau og tendra hjá þeim ljósið þitt. Líkna þeim sem þjást, veit von þeim sem örvænta. Minnstu þeirra sem eru í fjötrum og í fangelsi. Ver hjá þeim sem bundnir eru við skyldustörf í nótt svo að við getum fagnað helgri hátíð í öryggi og friði.
Helga gleði allra þeirra sem fagna og blessa barnsins glaða jólahug. Amen. (Karl Sigurbjörnsson)
Það er mín ósk að þið eigið öll sem eitt góða og gleðilega jólahátíð.
Bestu kveðjur, Sunna Dóra!
21.12.2007 | 21:36
Hæ!
Ég er búin að öllu, ég er ekki að ljúga ! Ég er búin að pakka inn gjöfum og koma þeim út, ég er búin að skúra og þrífa, ég er búin að setja upp jólatré, búin að taka Rjúpurnar út úr frystinum, búin að versla í matinn...það tók á að hugsa viku fram í tímann í þeim efnum og mér finnst eitthvað svo hversdagslegt að hugsa um matinn næstu tvo dagana að ég gat ekki séð það fyrir mér, þannig að hér verður ekki borðaður kvöldmatur fyrr en á mánudag! Ég er nefnilega í hátíðarskapi og get ekki hugsað á hversdagslegum nótum aftur fyrr en í fyrsta lagi 6. janúar
!
Annars er ég bara góð og mér líður vel og veðrið er gott og sól fer brátt hækkandi á himni og það er hlaupár framundan þannig að það er ekki hægt að vera annað en bjartsýn. Það hefur sko ekki komið 29. febrúar í fjögur ár.....hvað er það skemmtilegt mín kæru !
Ég vona að þið eigið gott kvöld og hagið ykkur vel því að Gáttaþefur er á faraldsfæti og maður veit aldrei hverju hann tekur upp á!
Segið bara síííííís...og brosið...þið vitið aldrei nema það sé verið að taka af ykkur mynd !
Góða nótt
20.12.2007 | 09:29
Afmælisbarn dagsins er:
18.12.2007 | 22:01
Hux
Ætli þetta sé ekki bara huxblogg, ég er eitthvað svo yfirveguð og róleg núna, aldrei þessu vant að ég nenni eiginlega ekki neinu. Ég er búin að vera líka að gera helling síðan í morgun. Beið tvisvar í röð til dæmis á pósthúsi, það var gefandi
! Síðan skellti ég mér aðeins í Kringluna með mömmunni minni og kláraði nánast að kaupa jólagjafir, bara smátterí eftir!
----
Ég var með Möttuna mína í talþjálfun í morgun, þar var meiri bið en venjulega og ég sat á biðstofunni með nefið ofan í Séð og heyrt, á kafi í menningunni eins og venjulega . Með mér á biðstofunni voru tvær konur og umræða hófst um samningsleysið milli talþjálfa og Tryggingastofnunar. Núna er komin einhver ný reglugerð frá heilbrigðisráðherra en hún er svo flókin að enginn skilur hana, ekki einu sinni starfsfólk Trygg.st. Ein konan sem að sat þarna sagðist vera einstæð og ekki ráða við að borga mikið lengur 4530 krónur fyrir skiptið. En hvað er annað hægt þegar velferð barnsins er í húfi. Áður en að samningar slitnuðu vorum við að borga 783 fyrir tímann, þannig að þetta er ansi mikil hækkun. Ég hugsa að á tveimur mánuðum séum við búin að borga hátt í 50.000 fyrir þessa þjónustu sem að átti í upphafi að vera niðurgreidd að mestu leyti.
Önnur kona sat á biðstofunni og hún sagði okkur það að hún og maður hennar með fjögur börn fluttu heim til Íslands eftir dvöl í Bretlandi fyrir tveimur árum síðan. Nú í dag er hún ekki enn komin með heimilislækni og börnin hennar eru ekki inni í eftirlitskerfinu sem snýr að barnavernd eins og varðandi sprautur ofl. Hún er á biðlista en ekkert gerist og á meðan þarf hún að sjá til þess að börnin hennar fái þessa grundvallarþjónustu sem snýr að ungbarnaeftirliti þar sem að þau eru ekki til í kerfinu.
Mér finnst þetta svo skrýtið, eins og með þessa þjónustu sem að snýr að talþjálfun barna. Maður á jú ekki annarra kosta völ en að fara með barnið í þjálfun. Framtíð Möttunnar minnar veltur á því að hún nái því upp sem að hana vantar. Námserfiðleikar ofl tengist málþroskavandamálum þannig að það er nauðsynlegt að byrgja brunninn strax. Svona þjónusta við börn á ekki að vera í ólestri og ekki þannig að foreldrar hafi ekki efni á að sjá til þess að börnin þeirra njóti þeirra úrræða sem eru í boði.
Mér finnst einhvern veginn eins og alls staðar sé verið að skera niður í þeim málaflokkum sem að snúa að heilbriðisþjónustu. Það er skorið niður á spítölum, hjá SÁÁ, í heilsugæslunni og um daginn heyrði ég að það ætti að loka einni deild fyrir heilabilaða á Landakoti. Þetta er alveg ótrúlegt og í raun til skammar.
Talþjálfinn hennar Möttu sagði að ég gæti reynt að fara með allar nóturnar niður á Trygg.st. og látið reyna á endurgreiðslu. Við höfum gert það áður en þá gekk það ekki eftir. Ég er viss um að þau finna eitthvert form á þessari nýju reglugerð sem að verður til þess að við fáum ekki endurgreitt. Reglugerðin hljómar held ég upp á helmingsstyrk á móti fullri greiðslu, þannig að við myndum borga um 2500...það munar þó um það.
Æi...ég er eitthvað þreytt á þessu kerfi, en nú ætla ég að hugsa um eitthvað annað, alla vega fram yfir jól. Ég alla vega hætti ekki að fara með barnið mitt í þessa þjálfun vegna þess að ég vil henni allt það besta en það svíður að heyra sögu einstæðs foreldris sem er ekki að ráða við þetta en vill allt gera til að geta sinnt barninu sínu. Stundum er kerfið svo óréttlátt og ómanneskjulegt.
----
Þetta er nú innsýn á lífið á biðstofum í Reykjavík í dag!
Nú ætla ég að horfa á Kompás og mega kenningar um musterisriddara og Ísland !
Góða nótt mín kæru og látið ekki svefnpöddurnar bíta ykkur í rassinn !
17.12.2007 | 15:55
Að búa í fjölbýlishúsi...
Ég bý í fjölbýlishúsi og við hjónin höfum gert það síðan að við byrjuðum að búa saman. Það er bara allt gott um það að segja og mér finnst það að ákveðnu leyti bara fínt. Það er til dæmis gott að vita af fólki í kringum sig og sérstaklega ef að það er aðsteðjandi hætta eins og ef að brjálaður axarmorðingi er að ráðast á okkur, þá get ég gólað af öllum lífs og sálarkröftum á hjálp og hún vonandi berst sem fyrst, alla vega ef að ég á góða granna
! Nú í morgun var ég vöknuð bræt and örlý til að fara að baka, alveg kominn í gírinn að baka skinkuhorn og hlusta á jólalög. Ég ákvað að vera enn duglegri og setja í þvottavél, þar sem bunkarnir frá liðinni viku bara stækka vegna þess að ég hef ekki haft mikinn tíma til að þvo.
Allt í einu er hringt á dyrabjölluna og ég fer fram og opna. Þar stendur ungur maður, sem er nýfluttur inn. Hann kynnir sig og segir mér í framhaldi að það sé mikill hávaði í þvottavélinni minn og truflandi. Ég sem er nú ekki stanslaust að þvo, geri það í svokölluðum skorpum eins og svo margir, verð alveg yfir mig hissa og missi andlitið niður í forstofugólf ! Hann heldur áfram og spyr hvort að ég geti eitthvað gert í þessu. Ég sem var í svona ljómandi jólaskapi að baka og allt, verð svona snögg pirruð og skelli framan í drenginn að ég geti nú ekki hætt að þvo
! Ég held áfram á sömu braut og segi að þetta sé nú bara svona í fjölbýlishúsum að það heyrist oft á milli hæða, ég til dæmis heyri þegar konan fyrir ofan mig er að þvo og kippi mér ekki mikið upp við það enda er ég dagfarsprúð og seinþreytt til vandræða (innskot frá moi)
! Svo er ég nú ekki að þvo á nóttinni, yfirleitt fyrri part dags og eiginlega aldrei á kvöldin þannig að ég segi bara fruss og svei....það væri nú annað ef að ég væri að bora lon og don eins og svo margir hafa gert hér undanfarin ár í þessum stigagangi
!
Drengurinn verður vandræðalegur, en að lokum segi ég að ég skuli sjá hvað ég geti gert (bíst samt við að halda bara áfram ótrauð að þvo, því ekki getum við verið í skítugum fötum, það er svo vandræðalegt út á við) !
Þegar þessu var lokið, gekk ég fram hjá speglinum í forstofunni og mér varð litið á myndina sem að þar blasti við: Þar stóð kona með svartan klút í hárinu (til að hár fari ekki í baksturinn sko), í svörtum íþróttabuxum og toppi...öll í hveiti frá toppi til táar og síðast en ekki síst með hveiti í andlitinu. Mér varð þá hugsi....Hver tekur mark á pirraðri konu með hveiti út um allt hahahaha....og ég sem var svo ákveðin og ánægð með að ég ætlaði sko ekki að láta vaða yfir mig....ó nei, mína þvotta átti að verja með ráðum og dáð.............næst reyni ég að vera í sparidressinu þegar einhver kemur og kvartar yfir mér......það er svona smartara út á við !
Svona er lífið í fjölbýlishúsum í uppsveitum Reykjavíkur í dag....kostir og gallar...en oftar samt kostir !
Gleðileg jól !
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
16.12.2007 | 19:19
Smá blogg :-)
Ég er búin að vera svo bissí þessa helgi að bloggið liggur bara í vanrækslu. Ég er hreinlega bara að jólast út !
Eyddi deginum í gær að versla jólagjafir og er nánast búin og svo var fertugs afmæli í gærkvöldi hjá systur hans Bolla. Í morgun var síðasti sunnudagaskólinn fyrir jól og eftir hádegi hófst bakstur dauðans ! Ég er búin að baka bollur úr fimm kílóum af hveiti og hátt í 200 bollur þekja nú eldhúsborðið mitt
!
Meiri bakstur er planaður á morgun en svo fer þessu nú að ljúka. Ég ætla að gera smá ís og fjölskyldukökuna sem er skylda að hafa á aðfangadagskvöld. Þegar öllu þessu er lokið hellast átta eggjarauður.....neinei ......ég ætla þá að setjast niður og njóta þess að jólin eru að koma. Það hentar mér vel að taka þetta svona á handahlaupum og eiga svo rólegan tíma þegar allt er tilbúið, enda á ég ekki mikið eftir.
Ég ætla að pakka inn gjöfum á eftir og svo kannski ég kíki á eina hryllingsmynd af því að það er svo jólalegt !
Eigiði gott kvöld, góða nótt og góða viku framundan...og munið það er ofur smart að jólast yfir sig !
tjusss...
péess...þetta er blogg
Um bloggið
Hugsað upphátt
Bloggvinir
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
halkatla
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Hrafnhildur Ólafsdóttir
-
Axel Eyfjörð Friðriksson
-
Erla Björk Jónsdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Guðný Bjarna
-
Sigríður Gunnarsdóttir
-
Helga Dóra
-
Brussan
-
Hulda Lind Eyjólfsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Heiða Þórðar
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Kolgrima
-
Heiða B. Heiðars
-
Edda Agnarsdóttir
-
Halla Rut
-
Huld S. Ringsted
-
Dísa Dóra
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Árni Svanur Daníelsson
-
Viðar Eggertsson
-
Þorgeir Arason
-
Sigfús Þ. Sigmundsson
-
Vefritid
-
Dofri Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Toshiki Toma
-
Guðmundur Örn Jónsson
-
Róbert Björnsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
krossgata
-
Ólafur fannberg
-
Baldvin Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Pétur Björgvin
-
Linda
-
Jóhann Helgason
-
Helena Leifsdóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Alfreð Símonarson
-
Hlekkur
-
Mamma
-
Þóra Ingvarsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Ómar Bjarki Kristjánsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Ruth
Annað
- Árni bróðir
-
Sunna Dóra
Hugsað upphátt!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar