Gott mál!

Ég verð nú að viðurkenna að ég gladdist núna í morgunsárið við að sjá þessa frétt. Ég vona að nýjum meiri hluta  í borginni takist að gera eitthvað í þessum málum og mér finnst það jákvætt að Dagur skuli gera það eitt af sínum fyrstu verkum að tala við yfirmenn leikskólanna og fara yfir vandann.

Ég á eina á leikskóla, sem býr við skertan vistunartíma núna þessa dagana og það er heil deild lokuð á hennar leikskóla og er búin að vera það síðan snemma í haust. Þetta er alveg skelfilegt og mér finnst að við eigum að sýna börnunum okkar þá virðingu að búa vel að þeim á þeirra vinnustað þar sem þau eyða deginum sínum alla vikuna. Við eigum einnig að búa vel að því fólki sem að sinnir börnunum okkar á meðan við sækjum vinnu, vegna þess að ef að starfsfólki leikskólanna líður vel, þá líður börnunum okkar vel.

Þannig að ég er ánægð með þetta útspil Dags og vona að núna verði framkvæmt af krafti í þessum málum!


mbl.is Borgarstjóri fundar um leikskólamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála ! :)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 17.10.2007 kl. 10:19

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sammála, mér finnst ekki slæmt ástand í leikskólamálum, það er NEYÐARÁSTAND ...   .. Á bæði ská-son og dótturson á leikskóla...... rosaleg hreyfing á starfsfólki svo þau þurfa greyin alltaf að vera að kynnast nýju fólki  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.10.2007 kl. 10:26

3 Smámynd: krossgata

Ég starfaði í 18 ár við þjálfun og umönnun fatlaðra og mín reynsla er sú að þegar atvinnuleysi er lítið og hagvöxtur í þjóðfélaginu þá hverfur fólk úr þessum störfum á leikskólum og umönnun og þjálfun fatlaðra.  Þegar þrengra er í búi og atvinnuleysi er meira þá var mestur stöðugleiki í þessari þjónustu.  Þegar ástandið er verra í þjóðfélaginu þá sættir fólk sig frekar við þessi lágu laun og er ekki eins mikið á ferðinni í/úr störfum.  Sorglegt.

krossgata, 17.10.2007 kl. 14:37

4 identicon

Þeir sem núna ráða vildu að laun leikskólakennara verði 2 földuð. Og nú vil ég sjá efndir þá því en varðandi velferðasvið þá er það í rúst eftir Björk og Jórunn hafði ekki bein í nefinu til að laga það og nú er Björk tekin við því aftur. Í félagslega kerfinu er meirihluti starfsmanna í áskrift á launin sín og vinna engum til gagns. Flestir ekki allir.Hef persónulega reynslu af því með fyrrverandi skjólstæðingum Byrgisins.Vonandi standa þau við sitt.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 19:20

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Bara góð byrjun held ég.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2007 kl. 19:45

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Takk fyrir athugasemdirnar. Ég held að við getum öll verið sammála um að það þarf sannarlega að taka til í þessum málum og vonandi veit þessi byrjun bara á gott

Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Sunna Dóra Möller
Sunna Dóra Möller
Guðfræðinemi sem stefnir á að útskrifast einhvern tímann og breyta svo heiminum í framhaldi af því!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jóla
  • jólatrée
  • P1010337
  • P1010307
  • norðurferð 322

Annað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 66280

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband